Utankjörfundaratkvæðagreiðslur erlendis
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis fer fram hjá sendiráðum Íslands, fastanefndum Íslands hjá alþjóðastofnunum og ræðismönnum Íslands samkvæmt nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið getur einnig ákveðið að utankjörfundaratkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stöðum erlendis.
Kosningu utan kjörfundar skal hefja svo fljótt sem kostur er eftir að framboðslistar hafa verið auglýstir, þó eigi síðar en 29 dögum fyrir kjördag. Auglýsir utanríkisráðuneytið hvar og hvenær atkvæðagreiðsla hefst hverju sinni.
Sjá nánar XII. kafla laga um kosningar til Alþingis nr. 112/2021.
Verkefni borgaraþjónustu
Síðast uppfært: 9.3.2023 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.